Jafntefli hjá U17 karla gegn Rússum
Strákarnir í U17 gerðu í gærkvöldi jafntefli gegn Rússum í undankeppni EM en leikið er í Wales. Lokatölur urðu 1 - 1 eftir að Rússar höfðu leitt í leikhléi. Kristján Gauti Emilsson jafnaði metin fyrir Ísland í síðari hálfleik.
Lokaleikur liðsins í riðlinum verður gegn Bosníu og fer hann fram á laugardaginn. Í hinum leik riðilsins í gær gerðu Wales og Bosnía jafntefli, 2 - 2. Tvær efstu þjóðirnar tryggja sér sæti í milliriðlum og er möguleiki Íslands vissulega fyrir hendi. Einnig komast þær tvær þjóðir sem eru með bestan árangur í þriðja sæti áfram en riðlarnir eru þrettán talsins.