Vináttulandsleikur við Suður Afríku - Hópurinn tilkynntur
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Suður Afríku í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þriðjudaginn 13. október kl. 18:10.
Ísland og Suður Afríka hafa tvisvar áður mæst hjá A landsliðum karla. Árið 1998 gerðu þjóðirnar jafntefli 1-1 en þá var leikið í Þýskalandi. Árið 2005 léku svo þjóðirnar hér á Laugardalsvelli og sigruðu þá Íslendingar, 4-1.
Suður Afríkumenn undirbúa sig nú af miklum móð undir úrslitakeppni HM 2010 en þar verða þeir, sem kunnugt er, í hlutverki gestgjafa.