Strákarnir í U17 leika við Rússa - Byrjunarliðið tilbúið
Strákarnir í U17 leika gegn Rússum í dag í undankeppni EM en leikið er í Wales. Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og hefur Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.
Markvörður: Davíð Guðjónsson
Aðrir leikmenn: Bjarki Már Benediktsson – Hörður Björgvin Magnússon, fyrirliði – Ásgrímur Rúnarsson – Ómar Friðriksson, Hólmbert Friðjónsson – Andri Már Hermannsson – Tómas Óli Garðarsson – Emil Pálsson, Kristján Gauti Emilsson og Bjarni Gunnarsson
Íslenska liðið tapaði gegn Wales í fyrsta leiknum með þremur mörkum gegn tveimur á meðan Rússar og Bosníumenn gerðu markalaust jafntefli.