Naumt tap í fyrsta leik hjá strákunum í U17
Strákarnir í U17 hófu leik í gær í undankeppni EM þegar þeir mættu Wales en riðillinn er leikinn þar í landi. Lokatölur urðu 3 - 2 heimamönnum í vil eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi. Hólmbert Friðjónsson og Kristján Gauti Emilsson skoruðu mörk Íslands í leiknum og jöfnuðu þar með leikinn í 2 - 2.
Annar leikur liðsins fer fram á morgun, miðvikudag, en þá eru Rússar mótherjarnir. Rússland og Bosnía gerðu markalaust jafntefli í hinum leik riðilsins í gær.