Strákarnir í U17 leika gegn Wales í dag
Strákarnir í U17 leika í dag fyrsta leik sinn í undankeppni EM en leikið er í Wales. Mótherjarnir í dag eru heimamenn en einnig leika Bosnía og Rússland í þessum riðli. Leikurinn í dag hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og hefur Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, tilkynnt byrjunarlið sitt.
Markvörður: Brynjar Örn Sigurðsson
Aðrir leikmenn: Bjarki Már Benediktsson – Hörður Björgvin Magnússon, fyrirliði – Ásgrímur Rúnarsson – Ómar Friðriksson, Hólmbert Friðjónsson – Andri Már Hermannsson – Viggó Kristjánsson – Emil Pálsson, Kristján Gauti Emilsson og Bjarni Gunnarsson