Kvennalandsliðið upp um tvö sæti á styrkleikalista FIFA
Ísland er í 17. sæti á nýjum styrkleikalista kvenna sem FIFA gaf út í dag. Ísland fer upp um 2 sæti og sitja í sautjánda sætinu ásamt Rússum. Það eru Bandaríkin sem eru í efsta sæti listans en nýkrýndir Evrópumeistarar Þjóðverja eru í öðru sæti.