Keppni í milliriðlum bíður U19 kvenna
Stelpurnar í U19 báru sigurorð af Rúmenum í gær en leikurinn var liður í undankeppni fyrir EM. Lokatölur urðu 5 - 0 Íslendingum í vil eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í hálfleik. Stelpurnar tryggðu sér þar með sæti í milliriðlum keppninnar með því að hafna í öðru sæti riðilsins með jafnmörg stig og Sviss.
Sigurinn var öruggur eins og tölurnar gefa til kynna en þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoruðu í fyrri hálfleiknum. Í þeim síðari bætti Kristín Erna öðru marki sínu við og Arna Sif Ásgrímsdóttir skoraði svo tvö mörk í uppbótartíma.
Keppt verður svo í milliriðlum í lok mars á næsta ári en úrslitakeppnin sjálf fer svo fram í maí í Makedóníu.