Flottir fánaberar á vellinum í gær
Á landsleik Íslands og Eistlands í gærkvöldi vöktu fánaberarnir sérstaka athygli. Um var að ræða átta fatlaðar stúlkur sem að héldu á fánum FIFA á meðan leikmenn gengu inn á völlinn og þjóðsöngvar þjóðanna voru leiknir.
Ljóst er að fánaberarnir höfðu góð áhrif á leikmenn Íslands í leiknum enda urðu mörkin 12 áður en yfir lauk.