Byrjunarlið Ísland gegn Eistlandi
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Eistlandi í undankeppni HM 2011, en liðin mætast á Laugardalsvelli á fimmtudag kl. 20:00. Erna B. Sigurðardóttir leikur í miðverði og Rakel Hönnudóttir er á hægri kanti í hefðbundinni 4-3-3 uppstillingu.
Markvörður
Þóra B. Helgadóttir
Hægri bakvörður
Sif Atladóttir
Vinstri bakvörður
Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir
Erna B. Sigurðardóttir og Katrín Jónsdóttir (fyrirliði)
Varnartengiliðir
Edda Garðarsdóttir og Sara Björk gunnarsdóttir
Sóknartengiliður
Dóra María Lárusdóttir
Hægri kantmaður
Rakel Hönnudóttir
Vinstri kantmaður
Hólmfríður Magnúsdóttir
Miðframherji
Margrét Lára Viðarsdóttir