Opnað fyrir miðasölu á Ísland-Georgía
Opnað hefur verið fyrir miðasölu á viðureign Íslands og Georgíu, en liðin mætast í vináttulandsleik A-karla á Laugardalsvelli á miðvikudag. Miðaverði er stillt í hóf og er fjölskyldufólk sérstaklega hvatt til að mæta, enda er 50% afsláttur af miðaverði fyrir 16 ára og yngri, eins og venjulega.
Þetta er í fyrsta sinn sem Georgía og Ísland mætast í A-landsliðum karla og verður fróðlegt að sjá hvernig strákarnir okkar spjara sig, eftir frábæran leik gegn Norðmönnum á laugardag.
Verð (í forsölu til og með 8. september):
Rautt Svæði, 3.000 kr (2.500 í forsölu)
Blátt Svæði, 2.500 kr (2.000 í forsölu)
Grænt Svæði, 1.500 kr (1.000 í forsölu)