Góður sigur hjá U19 karla á Skotum
Strákarnir í U19 karla unnu góðan sigur á jafnöldrum sínum frá Skotlandi í dag. Þessi vináttulandsleikur var leikinn ytra og urðu lokatölur 2 - 0 Íslendingum í vil eftir að okkar menn höfðu leitt með einu marki í leikhléi. Það var Fylkismaðurinn Pape Mamadou Faye sem að skoraði bæði mörk Íslendinga.
Þjóðirnar eigast aftur við á miðvikudaginn og verður spennandi að fylgjast með því hvort strákarnir nái að fylgja eftir þessum góðu úrslitum.