U17 kvenna mætir Frökkum í dag
Stelpurnar í U17 kvenna verða í eldlínunni í dag þegar þær mæta Frökkum í öðrum leik sínum í riðlakeppni EM sem fram fer hér á landi. Leikurinn fer fram í Grindavík og hefst kl. 13:00. Á sama tíma mætast í Keflavík, Ísrael og Þýskaland.
Íslenska liðið gerði markalaust jafntefli í fyrsta leik sínum í riðlinum gegn Evrópumeisturum Þjóðverjum. Mótherjar Íslendinga í dag, Frakkar, unnu hinsvegar stórsigur á Ísrael með átta mörkum gegn engu.
Við hvetjum knattspyrnuáhugamenn að mæta á völlinn í Grindavík og styðja okkar stelpur í erfiðum leik.