Davíð Þór kallaður inn í hópinn
Davíð Þór Viðarsson úr FH hefur verið kallaður inn í hópinn fyrir vináttulandsleik gegn Georgíu næstkomandi miðvikudag á Laugardalsvöllinn. Landsliðsþjálfarinn, Ólafur Jóhannesson, kallaði á Davíð Þór eftir að Ragnar Sigurðsson hafði fengið leyfi frá leiknum af persónulegum ástæðum.
Leikurinn við Georgíu fer fram miðvikudaginn 9. september á Laugardalsvellinum og hefst kl. 19:30.