Miðar fyrir handhafa A-passa á Ísland - Georgía
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland – Georgía afhenta þriðjudaginn 8. september frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
Möguleiki er að panta miða í síma 510-2900 á sama tíma, þ.e. þeir sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma.
Leikurinn við Georgíu fer fram á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 9. september og hefst kl. 19:30.