Rúmenskur dómarakvartett
Það verða Rúmenar sem dæma viðureign Íslands og Noregs í undankeppni HM 2010 á laugardag. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst kl. 18:45. Dómarakvartettinn er allur rúmenskur og dómarinn heitir Alexander Tudor.
- Dómari: Alexandru TUDOR (ROU)
- Aðstoðardómari 1: Cristian NICA (ROU)
- Aðstoðardómari 2: Aurel ONITA (ROU)
- Fjórði dómari: Ovidiu HATEGAN (ROU)