Magnús dæmir í Eistlandi
Magnús Þórisson dæmir á morgun, laugardaginn 5. september, leik Eistlands og Georgíu í undankeppni EM hjá U21 karla. Leikurinn fer fram í Tallinn og Magnúsi til aðstoðar verða þeir Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Áskell Gíslason. Fjórði dómari verður Þóroddur Hjaltalín.