Háttvísidagar FIFA 2009
FIFA stendur nú fyrir sérstökum háttvísidögum í 13. sinn, en þeir voru fyrst haldnir árið 1997. Að þessu sinni urðu dagarnir 5. til 9. september fyrir valinu, en á því tímabili eru einmitt tveir landsleikjadagar. Háttvísidagarnir eru haldnir hátíðlegur á ýmsan hátt víðs vegar um heiminn, allt frá grasrótarknattspyrnu og til A-landsleikja.
Minnt verður á háttvísidaga FIFA hér á Íslandi í tengslum við leiki A-landsliðs karla í byrjun september. Leikið verður gegn Norðmönnum 5. september, sem er síðasti leikur íslenska liðsins í undankeppni HM 2010, og síðan verður leikinn vináttulandsleikur gegn Georgíu 9. september. Báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli.
Knattspyrnusamband Íslands hvetur alla - leikmenn, þjálfara, dómara, stuðningsmenn og alla aðra sem tengjast knattspyrnu með einum eða öðrum hætti – til að sýna háttvísi, jafnt á vellinum sem utan hans. KSÍ minnir á að hver einasti maður má aldrei missa sjónar á því að besta leiðin til að leika knattspyrnu er að sýna háttvísi, heiðarleika og virðingu.
10 gullnar reglur FIFA um háttvísi
- Leikið heiðarlega.
- Leikið til sigurs, en takið tapi með reisn.
- Hlítið knattspyrnulögunum.
- Sýnið mótherjum, samherjum, dómurum, forráðamönnum og stuðningsmönnum virðingu.
- Hafið heildarhagsmuni knattspyrnunnar í huga.
- Heiðrið þau sem verja gott orðspor knattspyrnunnar.
- Hafnið spillingu, ólöglegum lyfjum, eiturlyfjum, kynþáttahatri, ofbeldi, veðmálastarfsemi og öðrum hættum sem kunna að steðja að íþróttinni okkar.
- Styðjið aðra í að standast þrýsting spillingar.
- Afneitið þeim sem reyna að lítillækka íþróttina okkar.
- Notið knattspyrnu til að bæta heiminn.