Miðar fyrir handhafa A-passa á Ísland - Noregur
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Noregur afhenta fimmtudaginn 3. september frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
Möguleiki er að panta miða í síma 510-2900 á sama tíma, þ.e. þeir sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma. Athugið að takmarkað magn af miðum er í boði á þennan leik.
Leikurinn við Noreg fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 5. september og hefst kl. 18:45.