Edda komin í 75 leiki
Edda Garðarsdóttir náði þeim áfanga í leiknum gegn Þjóðverjum á EM að leika sinn 75. A-landsleik fyrir Íslands hönd. Edda lék sinn fyrsta landsleik árið 1997, gegn Úkraínu í undankeppni HM 1999 á Laugardalsvellinum.
Í þessum 75 leikjum hefur Edda skorað tvö mörk og er hún lykilmaður í miðjuspili liðsins, mikill leiðtogi í landsliðshópnun.