Þrjár breytingar á byrjunarliðinu fyrir leikinn við Þjóðverja
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari stelpnanna okkar, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði Íslands fyrir lokaleik liðsins í úrslitakeppni EM, gegn Þjóðverjum á sunnudag. Þjóðirnar mætast á Tampere-leikvanginum og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma.
Leikkerfið er hefðbundið og óbreytt frá síðasta leik - Fjögurra manna varnarlína, tveir varnartengiliðir, einn sóknartengiliður, marksæknir kantmenn og einn miðframherji - en áherslurnar breytast þó aðeins og mun liðið liggja aðeins aftar en í fyrstu tveimur leikjunum.
Katrín Ómarsdóttir kemur aftur inn á miðjuna í stað Dóru Stefánsdóttur, Sif Atladóttir kemur í hægri bakvörðinn í stað Ernu B. Sigurðardóttur og Guðbjörg Gunnarsdóttir verður á milli stanganna í stað Þóru B. Helgadóttur.
Markvörður
- Guðbjörg Gunnarsdóttir
Hægri bakvörður
- Sif Atladóttir
Vinstri bakvörður
- Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir
- Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
- Katrín Jónsdóttir, fyrirliði
Varnartengiliðir
- Edda Garðarsdóttir
- Sara Björk Gunnarsdóttir
Sóknartengiliður
- Katrín Ómarsdóttir
Hægri kantmaður
- Dóra María Lárusdóttir
Vinstri kantmaður
- Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji
- Margrét Lára Viðarsdóttir