Finnar og Hollendingar komnir í 8-liða úrslit
Keppni í A-riðli EM kvennalandsliða í Finnlandi lauk í dag. Finnar höfðu þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og misstu það ekki þrátt fyrir tap í lokaleiknum, 0-1 gegn Úkraínumönnum. Úkraína kemst þrátt fyrir þetta ekki upp úr neðsta sætinu þar sem þær úkraínsku höfðu áður tapað fyrir Dönum, sem ljúka einnig keppni í riðlinum með þrjú stig eftir 1-2 tap gegn Hollendingum, sem hafa þar með tryggt sér sætið í 8-liða úrslitum ásamt Finnum. Danir eiga þó enn möguleika á að komast áfram, en þurfa að bíða eftir niðurstöðu leikja í B- og C-riðli.