Bara markmenn á æfingu í morgun
Það voru einungis markmenn kvennalandsliðsins sem voru á séræfingu í morgun, en útileikmenn fengu frí. Guðmundur Hreiðarsson, markmannsþjálfari, fór með þær Þóru, Guðbjörgu og Söndru á æfingu á Hervanta-vellinum. Útileikmennirnir Rakel Loga, Guðný Björk og Ásta Árna fóru reyndar með á æfingu og höfðu það hlutverk að skjóta á markmennina.
Lokaæfing liðsins verður svo í Hervanta síðdegis í dag, laugardag, og þar verða allir leikmenn liðsins. Fyrir æfinguna verður blaðamannafundur á keppnisvellinum.
Byrjunarlið Íslands verður svo tilkynnt í kvöld á fundi liðsins og verður það birt hér á vef KSÍ um leið og Sigurður Ragnar þjálfari hefur lokið við að tilkynna það leikmönnum.