Byrjunarliðið gegn Noregi á fimmtudag
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari stelpnanna okkar, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Noregi. Þjóðirnar mætast á Lahden leikvanginum á fimmtudag og hefst leikurinn kl. 17:00 að íslenskum tíma.
Leikkerfið er hefðbundið og óbreytt frá síðasta leik - Fjögurra manna varnarlína, tveir varnartengiliðir, einn sóknartengiliður, marksæknir kantmenn og einn miðframherji - en þó er ein breyting gerð á byrjunarliði íslenska liðsins. Dóra Stefánsdóttir kemur inn á miðjuna í stað Katrínar Ómarsdóttur.
Markvörður
- Þóra B. Helgadóttir
Hægri bakvörður
- Erna B. Sigurðardóttir
Vinstri bakvörður
- Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir
- Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
- Katrín Jónsdóttir, fyrirliði
Varnartengiliðir
- Edda Garðarsdóttir
- Dóra Stefánsdóttir
Sóknartengiliður
- Sara Björk Gunnarsdóttir
Hægri kantmaður
- Dóra María Lárusdóttir
Vinstri kantmaður
- Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji
- Margrét Lára Viðarsdóttir