Kristinn dæmir í Evrópudeildinni í Austurríki
Kristinn Jakobsson mun næstkomandi fimmtudag dæma leik Austria Vín frá Austurríki og Metallurh Donetsk frá Úkraínu en leikið verður í Vín. Leikurinn er í Evrópudeild UEFA og er seinni viðureign liðanna en fyrri leiknum í Úkraínu lauk með jafntefli, 2 - 2.
Kristni til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson og fjórði dómari verður Jóhannes Valgeirsson.
Kristinn er einmitt staddur núna í Sviss en þar sækir hann námskeið UEFA um fimm dómara kerfið sem UEFA hefur verið að þróa. Ásamt Kristni er Ingi Jónsson, eftirlitsmaður, á þessu námskeiði.