Nóg að gera hjá Svölu sjúkraþjálfara
Það er hefur verið nóg að gera hjá Svölu, sjúkraþjálfara kvennalandsliðsins okkar, í Finnlandi, eins og gengur og gerist í landsliðsferðum, og jafnvel líklegt að meira verði að gera þegar líður á mótið, enda margir leikir með stuttu millibili. Sjúkraherbergið er án vafa vinsælasta herbergið, ekki bara fyrir þá leikmenn sem þurfa aðhlynningu, heldur líka þá sem vilja bara koma og spjalla.
Ólína í meðferð hjá Svölu sjúkraþjálfara, sem sendir lasergeisla í hásinina á Ólínu til að vinna á bólgu. Rakel Loga kvartar yfir ástandi tölvunnar sinnar, Svala lofar að kíkja á hana næst (tölvuna).