Heimamenn byrja með sigri
Heimamenn á EM, Finnar, byrjuðu úrslitakeppnina með kærkomnum 1-0 sigri í fyrsta leik, gegn Dönum á Ólympíuleikvanginum í Helsinki. Sigurmark leiksins kom í seinni hálfleik, þegar aukaspyrna langt utan af velli, ætlað sem sending inn í teiginn, hafnaði í danska markinu.
Úkraínumenn virtust hálf sofandi í byrjun leiks gegn Hollendingum, sem þeir síðarnefndu nýttu sér vel og skoruðu tvö mörk á fyrstu tíu mínútunum. Fleiri urðu mörkin ekki og Holland er því á toppi A-riðils eftir leiki dagsins.