Training Ground með umfjöllun um íslenska liðið
Einn hluti af hinni viðamiklu heimasíðu UEFA, Training Ground, hefur að undanförnu fjallað um þær þjóðir sem leika í úrslitakeppni EM í Finnlandi sem hefst nú eftir fimm daga. Nú er röðin komin að íslenska liðinu og eru viðtöl við Margréti Láru og Sigurð Ragnar en þau voru tekin í Englandi í síðasta mánuði.
Áður hafði birst á sama vettvangi umfjöllun um Ástu Árnadóttur og hennar frábæru innköst. Kíkið á Training Ground og sjáið umfjöllun um íslenska liðið og þaulskipulagðan skeggvöxt landsliðsþjálfarans.