Óskað eftir sjálfboðaliðum vegna riðils í EM hjá U17 kvenna
Dagana 3. - 10. september verður haldin hér á landi riðill í undankeppni EM hjá U17 kvenna. Ásamt Íslendingum leika þar Þýskaland, Frakkland og Ísrael. KSÍ óskar eftir sjálfboðaliðum til að starfa við þetta mótshald.
Ýmis störf eru í boði og t.d. vantar fylgdarmenn fyrir þær þjóðir er sækja okkur heim. Fylgdarmenn þjóða sjá um að fylgja liðunum á æfingar og í leiki og eru þeim innanhandar allan tímann sem þau dvelja hér á landi.
Vinsamlegast hafið samband við Klöru Bjartmarz (klara@ksi.is) ef þið hafið áhuga á því að starfa með okkur, eða ef óskað er frekari upplýsingum.