Æfingaleikur hjá U17 kvenna - Leikið á Fjölnisvelli
Stelpurnar í U17 kvenna leika á sunnudaginn æfingaleik við Aftureldingu/Fjölni og fer leikurinn fram á Fjölnisvelli en ekki Varmárvelli eins og áætlað var í fyrstu. Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið 18 leikmenn sem munu spreyta sig í þessum leik.
Stelpurnar í U17 kvenna undirbúa sig nú fyrir undakeppni EM en riðill þeirra fer fram hér á landi dagana 4. - 9. september. Mótherjarnir þar verða ekki af verri endanum: Þýskaland, Frakkland og Ísrael.