Norræna dómararáðstefnan haldin hér á landi í ár
Norræna dómararáðstefnan, sem haldin er annað hvert ár, fer fram hér á Íslandi dagana 14. til 16. ágúst. Síðast var ráðstefnan haldin á Álandseyjum árið 2007. Ráðstefnuna sitja fulltrúar úr dómaranefndum allra Norðurlandanna, auk fulltrúa Norðurlandanna í dómaranefndum FIFA og UEFA, og er farið vítt og breitt um hina ýmsu þætti dómgæslu.
Bo Karlsson frá Svíþjóð og Geir Þorsteinsson formaður KSÍ sitja í dómaranefnd UEFA og Daninn Peter Mikkelsen situr í dómaranefnd FIFA.