Miðasölu á úrslitakeppni EM kvenna lokið hjá KSÍ
Eins og kunnugt er leikur kvennalandslið Íslands í lokakeppni EM í Finnlandi síðar í mánuðinum. Hægt hefur verið að kaupa miða á leiki íslenska liðsins á skrifstofu KSÍ, en þeirri miðasölu er nú lokið.
Þó er enn hægt að kaupa miða á leikina í keppninni í gegnum vef UEFA.
Alls seldust yfir 100 miðar hjá KSÍ á síðustu tvo leiki íslenska liðsins.
Hægt er að finna ýmsar upplýsingar um mótið á vefnum www.emstelpurnar.is.