Íslensk dómaratríó í vináttulandsleikjum á miðvikudag
Tvö íslensk dómaratríó verða að störfum í vináttulandsleikjum á miðvikudag, annars vegar í Danmörku og hins vegar á Norður-Írlandi.
Jóhannes Valgeirsson dæmir leik Norður-Írlands og Ísraels í Belfast. Aðstoðardómarar í leiknum verða þeir Áskell Þór Gíslason og Oddbergur Eiríksson.
Kristinn Jakobsson dæmir viðureign Danmerkur og Chile í Kaupmannahöfn. Aðstoðardómarar leiksins verða þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson.