Hannes Þór og Bjarni Ólafur inn í hópinn gegn Slóvakíu
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur gert tvær breytingar á hópnum sem mætir Slóvakíu í vináttulandsleik á miðvikudag. Markvörðurinn Árni Gautur Arason og fyrirliðinn Hermann Hreiðarsson geta ekki verið með vegna meiðsla og í þeirra stað hafa Hannes Þór Halldórsson markvörður Fram og Bjarni Ólafur Eiríksson leikmaður Vals verið valdir. Þar með hafa þrjár breytingar verið gerðar á upprunalega hópnjum sem var tilkynntur, en áður hafði Pálmi Rafn Pálmason verið valinn í stað Arnórs Smárasonar.