Danskt dómaratríó á Ísland-Slóvakía á miðvikudag
Dómaratríóið í vináttuleik A-karlalandsliða Íslands og Slóvakíu á miðvikudag kemur frá Danmörku. Fjórði dómarinn er hins vegar íslenskur, Gunnar Jarl Jónsson, sem nýverið var hækkaður upp í A-hóp dómara. Eftirlitsmaðurinn er einnig íslenskur, Eyjólfur Ólafsson.
- Dómari - Lars Christoffersen
- Aðstoðardómarar - Henrik Malmberg og Lars Hummelgaard
- Fjórði dómari - Gunnar Jarl Jónsson
- Eftirlitsmaður - Eyjólfur Ólafsson
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli á miðvikudag og hefst kl. 19:00.