Valgeir dæmir í Svíþjóð á sunnudaginn
Síðastliðin ár hafa knattspyrnusambönd á Norðurlöndunum haft með sér samstarf um dómaraskipti og hafa þá dómarar ferðast á milli þessara landa og dæmt leiki.
Valgeir Valgeirsson dómari mun á sunnudaginn dæma leik í næst efstu deildinni í Svíþjóð sem nefnist Superettan. Valgeir dæmir þar leik Quiding og Jönköping.