Heimildarmyndin Stelpurnar okkar
Síðustu tvö ár hafa þær Þóra Tómasdóttir og Hrafnhildur Gunnarsdóttir, fylgt íslenska kvennalandsliðinu eins og skugginn. Afrakstur þess eltingaleiks er svo hægt að berja augum í Háskólabíói í næstu viku en þá verður frumsýnd heimildarmyndin "Stelpurnar okkar"
Í myndinni kemur fram ýmislegt það sem gerist á bakvið tjöldin í undirbúningi leikja og ferðalögum sem og skyggnst er inn í daglegt líf nokkurra leikmanna.
Landsmenn eru hvattir til þess að bregða sér í Háskólabíó í næstu viku og sjá stórskemmtilega mynd um okkar stelpur.
Hérna að neðan má sjá sýnishorn úr myndinni "Stelpurnar okkar"