U21 karla mætir Tékkum - Hópurinn tilkynntur
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, tilkynnti í dag hópinn sem mætir Tékkum í undankeppni EM 2011. Leikurinn fer fram á KR-velli, miðvikudaginn 12. ágúst og hefst kl. 15:30.
Þetta er fyrsti leikur Íslands í þessari undankeppni og fyrsti leikurinn undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar eftir að hann snéri aftur sem landsliðsþjálfari U21 karla.
Einn leikur hefur þegar farið fram í riðlinum en þá lögðu Tékkar San Marínó á útivelli, 0 - 8.
Síðar sama dag og strákarnir mæta Tékkum leikur svo A landslið karla við Slóvaka á Laugardalsvelli.