• mið. 05. ágú. 2009
  • Dómaramál

Kristinn dæmir í Evrópudeildinni í Hollandi

Merki Evrópudeildar UEFA
Europa-League-logo_UEFA

Kristinn Jakobsson verður á ferðinni á morgun þegar hann dæmir seinni leik hollenska liðsins NAC Breda og pólska liðsins Polonia Varsjá í Evrópudeild UEFA.  Leikið verður í Breda í Hollandi og eru heimamenn með góða stöðu fyrir leikinn þar sem þeir unnu fyrri leikinn á útivelli, 1 - 0.

Kristni til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Oddbergur Eiríksson og fjórði dómari verður Magnús Þórisson.

Keppnin á uefa.com

Kristinn JakobssonSigurður Óli ÞorleifssonOddbergur EiríkssonMagnús Þórisson