Strákarnir höfnuðu í fjórða sæti á Norðulandamótinu
Strákarnir í U17 höfnuðu í fjórða sæti á opna Norðurlandamótinu sem fram fór í Þrándheimi í Noregi. Í leiknum um þriðja sætið töpuðu strákarnir gegn heimamönnum í hörkuleik, 3 - 5, eftir að Norðmenn leiddu í hálfleik með tveimur mörkum gegn engu.
Norðmenn voru þar með krýndir Norðurlandameistarar en það voru Englendingar og Skotar sem léku til úrslita á mótinu og sigruðu Englendingar með þremur mörkum gegn einu og þurfti framlengingu til. Danir lögðu Svía í leik um fimmta sætið og Finnar báru sigurorð af Færeyingum í leik um sjöunda sætið.