Frítt fyrir yngri iðkendur, öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland - Slóvakía
KSÍ hefur ákveðið að bjóða yngri iðkendum aðildarfélaga sinna, ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Slóvakíu sem fram fer á Laugardalsvelli 12. ágúst næstkomandi kl. 19:00.
Jafnframt er öryrkjum og ellilífeyrisþegum boðinn ókeypis aðgangur að leiknum.
Aðildarfélög KSÍ sem vilja koma með hópa yngri iðkenda sinna á leikinn er bent á að hafa samband við skrifstofu KSÍ. Tilgreina þarf félag, fjölda iðkenda og tengilið/forráðamann. Gert er ráð fyrir að hóparnir komi í fylgd með forráðamönnum sem að sjálfsögðu fá líka frímiða. Miðar verða afhentir forráðamönnum á Laugardalsvelli mánudaginn 10. ágúst og þriðjudaginn 11. ágúst.
Aðgöngumiðar fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega verða afhentir á skrifstofu KSÍ frá miðvikudeginum 5. ágúst til og með þriðjudagsins 11. ágúst, gegn framvísun viðeigandi skírteina.
KSÍ vill hvetja fólk til að nýta tækifærið, koma á Laugardalsvöll og styðja við bakið á strákunum okkar í þessum vináttulandsleik.
Miðasala á leikinn er í gangi í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
Við erum öll í íslenska landsliðinu!