Þorvaldur og Sindri að störfum í Noregi
Það er ekki bara U17 karlalandsliðið sem er í eldlínunni í Þrándheimi þessa dagana því að tveir dómarar frá Íslandi eru þar einnig. Þetta eru þeir Þorvaldur Árnason og Sindri Kristinsson en þeir starfa við dómgæslu á þessu móti.
Þorvaldur dæmdi leik Noregs og Færeyja á þriðjudag og Sindri var honum til aðstoðar. Sami háttur var svo í gær á leik Færeyinga og Englands. Þarna öðlast þessir dómarar góða reynslu sem mun nýtast þeim vel í framtíðinni.