Markalaust jafntefli hjá Þjóðverjum gegn Japan
Þýskaland og Japan gerðu í gær markalaust jafntefli í vináttulandsleik kvenna sem fram fór í Mannheim í Þýskalandi. Þýska liðið leikur sem kunnugt er með því íslenska í riðli í úrslitakeppni EM í Finnlandi.
Japanska liðið færir sig nú til Frakklands þar sem það mætir öðrum mótherjum Íslendinga í riðlakeppninni. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari íslenska liðsins, mun verða þar á leiknum sem fer fram á laugardaginn. Ísland og Frakkland mætast svo í Tampere, mánudaginn 24. ágúst í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir Sigurð Ragnar að skoða franska liðið sem að hann þekkir þó nokkuð vel eftir hörku viðureignir í undankeppninni.