Knattþrautir á Sauðárkróki í dag
Gunnar Einarsson heldur áfram að ferðast með knattþrautir KSÍ um landið en hann heimsótti Reykjavíkurfélögin ÍR og KR fyrr í vikunni. Í dag, fimmtudag, verður Gunnar svo á Sauðárkróki þar sem strákar og stelpur úr 5. flokki fá að spreyta sig.
Sem kunnugt er verður Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Sauðárkróki um helgina og geta gestir og gangandi spreytt sig þá á knattþrautunum á laugardeginum og verða þrautirnar þá í öruggri umsjón Ólafs Böðvars Helgasonar.