Sigurður Ragnar sá stórsigur Þjóðverja
Þjóðverjar unnu stórsigur á Hollendingum í vináttulandsleik sem fram fór á laugardaginn. Þýska liðið hafði mikla yfirburði í leiknum og sigraði með sex mörkum gegn engu. Leikið var í Sinsheim í Þýskalandi fyrir framan 22.500 áhorfendur.
Báðar þessar þjóðir búa sig nú af kappi undir úrslitakeppni EM í Finnlandi en þýska liðið mætir því íslenska í riðlakeppninni þar.