Breyting á 40 manna undirbúningshópnum
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur gert eina breytingu á undirbúningshópi sínum fyrir úrslitakeppni EM í Finnlandi. Inn í hópinn kemur Soffía A. Gunnarsdóttir úr Stjörnunni í stað Hörpu Þorsteinsdóttur úr Breiðabliki sem er meidd.