Vináttulandsleikir við Færeyjar í dag
Það verður mikið um að vera á knattspyrnuvöllum Suðurlands í dag en þar fara fram tveir vináttulandsleikir í dag. Kvennalandslið U17 og U19 leika þá við stöllur sínar frá Færeyjum.
Leikur U17 kvenna fer fram í Þorlákshöfn og hefst kl. 12:00 en leikur U19 kvenna fer fram í Hveragerði og hefst kl. 14:00. Það er um að gera að fjölmenna og hvetja stelpurnar áfram.