Geir Þorsteinsson í dómaranefnd UEFA
Framkvæmdastjórn UEFA kom saman í byrjun júlí og skipaði í nefndir á vegum sambandsins. Nokkrir einstaklingar frá KSÍ eru þar á meðal og ber þar helst að nefna að Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hefur verið skipaður annar varaformaður í dómaranefnd UEFA.
Fulltrúar sem eru í nefndum UEFA á vegum KSÍ eru neðangreindir:
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ - Dómaranefnd UEFA, 2. varaformaður
Guðrún Inga Sívertsen, gjaldkeri KSÍ - Nefnd um kvennaknattspyrnu
Lúðvík Georgsson, stjórnarmaður KSÍ - Leyfisnefnd
Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ - Fjölmiðlanefnd