Svíþjóðarmótið hefst hjá U18 karla í dag
Landslið U18 karla hefur í dag leik á Svíþjóðarmótinu og er fyrsti leikur liðsins við Wales. Leikurinn hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma og hefur Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U18 karla, tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.
Markvörður: Aron Elís Árnason
Varnarmenn: Brynjar Ásgeir Guðmundsson, Brynjar Gauti Gúðjónsson, Davíð Þór Ásbjörnsson og Sigurður Egill Lárusson
Tengiliðir: Páll Dagbjartsson, Sindri Snær Magnússon, Jón Daði Böðvarsson, Kristján Gauti Emilsson og Guðmundur Þórarinsson
Framherji: Ólafur Karl Finsen
Á fimmtudaginn verður svo leikið við heimamenn í Svíþjóð og á laugardaginn eru Norðmenn mótherjarnir.