Knattþrautirnar hafa vakið mikla lukku
Knattþrautir KSÍ eru í fullum gangi og hafa vakið mikla lukku um land allt. Gunnar Einarsson, sem hefur yfirumsjón með knattþrautunum, hefur farið víða um landið á síðustu vikum og kynnt þetta verkefni fyrir þjálfurum og iðkendum, og hafa viðtökurnar alls staðar verið mjög jákvæðar og þátttaka með afbrigðum góð.
Knattþrautir í viku 29
13. júlí - ÍR - kl. 16:30 - 5. flokkur kvenna
14. júlí - Grótta - kl. 13:00 - 5. flokkur kvenna og karla
15. júlí - Leiknir R. - 5. flokkur karla
17. júlí - Afturelding - kl. 15:00 - 5. flokkur karla og kvenna
18. júlí - Hamar - KSÍ dagurinn - kl. 09:00