Fjórir dómaraeftirlitsmenn frá Íslandi á Evrópuleikjum
Í vikunni verður leikið í Meistaradeild Evrópu og Evrópudeild UEFA. Íslensku félögin Fram, KR og FH verða þar í eldlínunni en einnig verða íslenskir eftirlitsmenn víðsvegar um Evrópu að störfum.
Egill Már Markússon verður dómaraeftirlitsmaður í Wales í kvöld þegar að Rhyl FC og FK Partizan mætast í Meistaradeild Evrópu. Á fimmtudag verða svo þrír dómaraeftirlitsmenn að störfum í Evrópudeild UEFA og einn eftirlitsmaður. Sigurður Hanneson verður í Sviss þar sem FC Basel og FC Santa Coloma eigast við. Í Luxemborg verður Ingi Jónsson á leik FC Differdange 03 og HNK Rijeka og Eyjólfur Ólafsson verður að störfum á leik Falkirk og Vaduz í Skotlandi. Þá verður Guðmundur Pétursson eftirlitsmaður UEFA í Litháen á leik FK Vetra og HJK Helsinki.